Útlit fyrir gott ár í ferðaþjónustu
Útlit er fyrir að afar gott ár í ferðaþjónustu, og er áætlað að gjaldeyristekjur geti farið yfir 200 milljarða króna á þessu ári.
View ArticleTekjuhæstu fá mest afskrifað
Sértækar aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn greiðsluvanda komu helst að gagni þeim sem alls ekki voru í slíkum vanda. Þetta er mat hagfræðinga Seðlabankans. Velferðarráðherra tekur fyrir að þetta sé...
View ArticleHætta á að aukin tæknivæðing leiði til verri aðbúnaðar
Sú hætta er fyrir hendi að aukin tæknivæðing í íslenskri nautgríparækt leiði til versnandi aðbúnað mjólkurkúa. Þetta kemur fram í máli fulltrúa Bændasamtakanna.
View ArticleÓttast ekki komu Bauhaus
Átök eru framundan á byggingarvörumarkaði nú þegar Bauhaus hefur boðað komu sína. „Markaðurinn er of lítill nú þegar," sagði Baldur Björnsson hjá Múrbúðinni. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík...
View ArticleSkjálftavirkni við Vatnajökul í morgun
Að minnsta kosti tíu jarðskjálftar hafa mælst norðaustan við Kistufell í morgun.
View ArticleMorðingja leitað í Oklahoma
Lögreglan í Oklahoma í Bandaríkjunum leitar nú að karlmanni sem skaut fimm manns, þar af þrjá til bana, í borginni Tulsa í gær.
View ArticleTíðindalaus páskahelgi hjá lögreglunni
Nóttin var hin rólegasta hjá lögreglunni um allt land, og engar upplýsingar hafa borist um neitt stórvægilegt.
View ArticleÓvissa ríkir um vopnahlé í Sýrlandi
Mikil óvissa ríkir um vopnahlé sem á að hefjast í Sýrlandi eftir tvo daga eftir að stjórnvöld í landinu kröfðust þess að stjórnarandstaðan undirriti skriflega yfirlýsingu um vopnahléið.
View ArticleLítið skíðafæri á landinu í dag
Nánast ekkert skíðafæri er á landinu í dag. Lokað er í Bláfjöllum og Skálafelli sem og í Oddskarði en þar er rigning og mjög blautur snjór.
View ArticleDanir vilja pólitískan fanga heim
Utanríkisráðherra Danmerkur, Villy Soevndal, hefur óskað eftir því að yfirvöld í Barein framselji pólitíska fangann Abdul al-Khawaja til Danmerkur.
View ArticleKarl segir siðferðisgildin ekki horfin úr þjóðarvitundinni
Hátíðarguðsþjónustum er nú að ljúka um allt land, en í Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands, predikaði í Dómkirkjunni klukkan átta í morgun. Þar sagði hann gömlu, góðu siðferðisgildin ekki horfin úr...
View ArticleÁhyggjuefni að færri feður fari í fæðingarorlof
Velferðarráðherra segir það áhyggjuefni að feðrum sem taka fæðingarorlof fari fækkandi. Verið sé að skoða að hækka aftur hámarksgreiðslur Fæðingarorlofssjóðs til að bregðast við þessu.
View ArticleErfið staða hjá Samkeppniseftirlitinu
Fjárheimildir Samkeppniseftirlitsins hafa dregist saman um átta prósent á sama tíma og málafjöldi hefur aukist um áttatíu prósent. Þessi staða gengur ekki upp til lengdar, segir forstjóri eftirlitsins.
View ArticleTannlæknar uggandi yfir munntóbaksnotkun
Tannlæknar sjá í auknu mæli illa farið tannhold vegna munntóbaksnotkunar. Þeir eru uggandi yfir þróuninni og óttast þau vandamál sem kunna að koma upp þegar fram líða stundir.
View ArticleKarl biskup flutti sína síðustu páskapredikun í dag
Karl Sigurbjörnsson, biskup, flutti sína síðustu páskahátíðarpredikun í Dómkirkjunni í morgun en hann lætur af embætti í sumar. Hann segir það hafa verið gleðilegt að fá að flytja þjóðinni boðskapinn í...
View ArticleBónorð á Aldrei fór ég suður
"Það er ást á Aldrei fór ég suður," sagði Sverrir Örn Ingólfsson, unnusti. "Ég verð bara að gera þetta núna. Halldóra Gunnlaugsdóttir, viltu giftast mér?"
View ArticleSpilað stanslaust í fimm vikur - farin að upplifa frægðina
Nýjasta plata íslensku hljómsveitarinnar Of Monsters and Men seldist í meira en fjörutíu þúsund eintökum á útgáfudegi í Bandaríkjunum. Meðlimir sveitarinnar, sem nú eru á tónleikaferðalagi vestanhafs,...
View ArticleAndstæðingar frumvarps mótmæla með frumlegum hætti
Andstæðingar væntanlegrar löggjafar í Arizona í Bandaríkjunum sem mun takmarka styrki vegna kaupa á getnaðarvörnum sendu heldur óvanalegar gjafir til löggjafa í ríkinu.
View ArticleKarlmaður í síbrotagæslu
Karl á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í síbrotagæslu til 2. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
View Article