E-töflur, kannabisefni, sterar, sprautur og lyf fundust við húsleit sem lögreglan á Suðurnesjum gerði í íbúðarhúsnæði í umdæminu. Húsleitin var gerð á föstudagskvöld, að fengnum dómsúrskurði Héraðsdóms Reykjaness. Efnin fundust víðs vegar í íbúðinni.
↧